Из альбома: In the Silence

Fuglinn minn úr fjarska ber
Fögnuð vorsins handa mér
Yfir höfin ægi-breið
Ævinlega — flýgur rétta leið
Tyllir sér á græna grein
Gott að hvíla lúin bein
Ómar söngur hjartahlýr
Hlusta ég á - lífsins ævintýr
Fús ég þakka fuglinn minn
Fyrir gleði-boðskapinn
Þessa ljúfu tæru tóna — tóna
Þegar haustar aftur að
Af einlægni ég bið um það
Að mega syngja sönginn þinn
Sumargestur — litli fuglinn minn
Fús ég þakka fuglinn minn
Fyrir gleði-boðskapinn
Þessa ljúfu tæru tóna — tóna
Þú átt athvarf innst í sál
Ó að ég kynni fuglamál
Skyldi ég lag á lúftgítarinn prjóna

Комментарии